|
|
 |
| Viðtöl |
 |
|
 |
,,Ég varð
fyrir ofsafengnum ærslaandatruflunum"
Sturla Jónsson er 36 ára Reykvíkingur sem hefur upplifað marvísleg dulræn fyrirbrigði.
Sálrænir hæfileikar hans og reynsla eru svo óvenjuleg að afar sjaldgæft hlýtur að teljast. Sem
unglingur varð hann fyrir barðinu á feikna öflugum ærslaandatruflunum (poltergeist). Ýmiss konar
högg og dynkir voru algengir, hlutir færðust úr stað og húsgögn hristust óþyrmilega. Í þessu
viðtali segir hann frá því hvernig þessar aðsóknir urðu til þess að fjölskylda hans varð að flýja
heimili sitt. Hann greinir ... nánar > |
 |
Dulskynjanir Erlu Stefánsdóttur
Fyrir tæpum þrjátíu árum fylgdi ég móður minni á fund sem haldinn var í Tónlistarskóla Akraness. Þar sat
ég meðal fólks og hlustaði á frásögn um efni sem vakti óskipta athygli viðstaddra. Ræðumaður greindi frá nýlegum
rannsóknum á sviði fyrirburðasálfræði. Hann sagði frá því að vísindamenn hefðu uppgötvað segulmögnuð svið
umhverfis líkamann og nefndi dæmi um íslenska konu sem í áraraðir hafði teiknað myndir af orkuhjúpum sem
hún sá umhverfis fólk. Fundarmönnum þótti auðheyrilega mikið ... nánar > |
 |
,,Satan er líf, ljós og unaður ..."
Við eyðibýli í nágrenni höfuðborgarinnar stendur altari, altari Satans. Það er sveipað
fjólubláu klæði, alsettu dularfullum táknum. Altaristaflan er mikilfengleg, allt að því ógnvægileg.
Hún ber mynd geitarhöfuðs með kórónu á höfði. Á altarinu eru ýmsir munir; hauskúpur, kaleikur, svört kerti,
rýtingur og kross. Krossinn er á hvolfi. Mér rennur kalt vatn milli skinns og hörunds að sjá helgasta
tákn okkar kristinna manna á miðju altari djöfulsins. Altarið stendur undir berum himni. Það er vornótt,
tunglið veður í skýjum og varpar kynngimagnaðri birtu á verurnar þrjár umhverfis altarið ... nánar > |
 |
|
|